Hæ
Nú er maður bara að taka sig til fyrir morgundaginn, þarf svo að fara í sturtu og gera mig reddý fyrir vinnuna, er reyndar að tapa mér úr þreytu þannig að ég nenni svona eiginlega ekki að fara en það verður bara að hafa það. 
En já, fór í skólann í dag.. Svo í bankann og eitthvað að stússast með ömmu og Sollu, var eiginlega bara að koma inn úr dyrunum, ákvað að blogga smá áður en ég set í töskuna fyrir morgundaginn og fer í sturtu. Er svo að spá í að loka augunum í smástund ef ég hef tíma fyrir það. Er svo þreytt að ég gæti sofnað standandi, vona bara að það verði ekki alltof mikið að gera í vinnunni. Allavega undir lokin, verð að vera komin heim svona svolítið snemma, ætla að stefna að því að vera komin upp í rúm svona 15 min yfir 12, hálf 1..
Hitti Selmu mína um helgina, ótrúlega gaman að sjá skvísuna
Svo var ég bara að vinna og þrífa og eitthvað vesen ..
Er að fara á LEG með skólanum á morgunn
Hlakka ótrúlega til, er bara búin að heyra gott um það og Hugleikur Dagsson er náttúrulega BARA snillingur þannig að ég er nú alveg að fíla það að fara að sjá leikritið
En allavega, ætlaði bara að rétt svo kasta inn kveðju, þetta er nú ábyggilega leiðinlegasta blogg í heimi en það verður að hafa það.
Heil og sæl
-Thelma;**